Prófíll

  • Nafn: Ester Ósk Árnadóttir
  • Netfang: esterosk@msn.com
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Bíó, Barþjónn og Leiðbeinandi
  • Hjúskaparstaða: Lausu
  • Um mig: Óendanlega óákveðin manneskja með endalausa drauma! Lifi lífinu og reyni að læra af mistökum.
  • Annað: Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig

Auglýsing

Klukkan

Myspace.com/esteroska

Myndir á myspace.com/esteroska.
ekki að nenna að setja þær hér inn líka:)

Nýjast á HumorPix

Funny Images, The grasping shirt Funny Images, Give Baldy Your Tit Funny Images, Why I’m watching the summer olympics Funny Images, How to answer every True or False quiz Funny Images, Always makes my morning pee a tad more delightful. Funny Images, I wonder how the boss will take it…

Blaa aa aaa

25. nóvember 2010 klukkan 01:00
Ég er mjög góður bloggari... Eitt blogg á ca. hálfs árs fresti, telst held ég bara gott í dag enda facebook allsráðandi í heiminum í dag. Í þokkabót held ég líka til að halda upp á það hversu góður bloggari ég sé að það hafi ekki ein manneskja farið inn á þessa síðu mína í marga mánuði og samt blogga ég...Score!!:) Ég er samt staðráðin í því að bloggið eigi eftir að detta í tísku aftur... ég bíð spennt... 

Mér líkaði samt betur við heiminn þegar hann var facebook laus, ég gæti stundum ælt hvað ég er háð facebook og hvað facebook getur verið pirrandi. Facebook-ið sjálft er ekki pirrandi en það gerir mann samt svo forvitin og maður veit hluti um fólk sem maður vill samt einhvern veginn ekki vita... hluti sem maður hefði stundum bara liðið betur yfir að vita ekki eða hreinlega kom ekki við en samt komið inn á facebook.  
Maður þarf líka ekkert að slúðra með vinkonunum lengur þetta er allt inn á facebook... Þannig yfirleitt þegar maður kemur með eitt stórt HEY! og ætlar að segja eitthvað mjög mikilvægt slúður er kinkað kolli og "já einmitt ég sá það á facebook" og þar með end of story... En facebook er samt stórkostlega góður kostur fyrir þá sem eru langt frá fjölskyldum sínum og vinum, facebook er svo sem mjög sniðugt abbarat en rosalega hefði ég óskað þess að ég hefði aldrei fengið mér svoleiðis... elskuelsku tímaþjófur!

Mér fannst blogginn alltaf skemmtilegri tímaþjófur, það var svo mikið bull sem gat komið upp úr fólki.

Bloggin munu koma aftur, þá verður nú gaman...

jibbíjej

Ester Ósk
Ester Ósk Árnadóttir
Engin athugasemd

PælaPælaPæla...Væla

23. júlí 2010 klukkan 14:56

Nú þarf ég að detta inn á eitt blogg... af því jú mér finnst trúnó blogg best... eitthvað gaman við the blúgg þótt ég sé eiginlega bara að bloggast með sjálfri mér :P 

Ég er ofboðslega mikill pælari, stundum aðeins of mikill pælari. Ég pæli rosalega mikið í sjálfri mér og á staðnum sem ég er í lífinu. Ég vil ná svo langt í lífinu og er með svo miklar væntingar til þess að ég er eiginlega bara frek og finnst ég vera ógeðslega frek manneskja að þrá svona mikið út úr lífinu..

Fyrir ca. klukkutíma hugsaði ég um lífið mitt og fannst það akkúrar þá frekar súrt.. þar sem ég lenti í ágætri lífsreyslu í nótt... jú það ákvað svona fínn bíll að keyra í veg fyrir mig með þeim afleiðingum að ég endaði utan vegar til að koma í veg fyrir hrikalega slys, það kostaði eina góða veltu, en bílinn minn slapp þó nokkuð vel! .. Manneskjan eða manneskjurnar sem voru í hinum bílnum gerðu ekki betur en svo að þau keyrðu í burtu eftir að hafa stefnt bæði mínu lífi og þeirra lífi í hættu. Ég er ennþá að pæla í því hvað þau voru að spá því ég hefði vel geta slasast lífshættulega og enginn hefði í raun geta nálgast mig þar sem klukkan var að ganga tvö á fimmtudagsnóttu og ekki mikill umferð. En ég slapp alveg ómeidd, ekki ein skráma...heppinn skítur heldur betur hér á ferð =)!

Tímasetning og staðsetningin er líka svo ótrúleg þar sem það er eingöngu vika í að það sé ár síðan ég velti mínum fallega Bahamas Bóbó, ekki svo langt frá þessum stað. Aftur var ég þó í belti þótt ótrúlegt megi virðast því það gerist í ca. 1 af hverjum 100 skiptum sem ég sest upp í bíl. Bílbeltið bjargaði mér því aftur. Munurinn er þó sá að í þetta skiptið var þetta ekki mér að kenna, heldur kom ég í veg fyrir eitthvað verra og get reynt að hugsa þetta svoleiðis.

Í nótt vorkenndi ég mér rosalega mikið og fannst þetta ótrúlega ósanngjarnt, fannst fáránlegt að þar sem það var ekki ég sem varð valdur af slysinu af hverju þurfti þá bílinn minn að skemmast. Ég gat náttúrulega ekki pælt í því að ég slapp algjörlega heil..

Svona dæmi kemur oft hausunum alveg af stað. Hvað ef ég hefði dáið í þessu slysi? .. hefði ég þá vilja að síðustu orðin við þá sem þykir vænt um hefðu verið síðustu orðin sem ég sagði við þá... Svarið var reyndar já, það komu upp margar hugsanir en ég held í raun að ég hefði ekki séð eftir neinu í þetta skiptið. Þótt það sé miklu miklu meira en frábært að hafa lifað af, ómeidd og fá að halda áfram :)! Það er einhver rosalegur verndarengill yfir mér, það er bara þannig.
En áður en ég skundaði út í sveit, í þessa örlagaferð mína var ég búinn að vera að vinna 18 tíma straight.. það sem kom samt upp í hugann minn var að ég var búinn að brosa og hlægja allan daginn og ekki skemmdi sólin fyrir... og var sátt við alla sem eru mér kærir.

Pointið með þessu bloggi er samt að eftir að hafa vorkennt sjálfri mér í mest allan dag út af slysinu datt ég inn á blogg hjá stelpu á sama aldri og sem er að berjast við krabbamein. Lífið er alls ekki sjálfgefið hjá henni og hver dagur er erfiður, lyfjagjafir og vesen. Hún er ekki að láta sig dreyma um útlönd, ferðast út um allt, fullkominn starfsferill, há laun, falleg börn eða annað sem lætur það sem maður hefur stundum líta ekkert of vel út. Hún getur ekki einu sinni pælt í orðinu ást eða samböndum, krabbameinið er númer 12OG3! Ekki það að ég sé ekki þakklát fyrir það sem ég hef en ég vill svo oft eitthvað stærra og meira að maður gleymir þessu sjálfgefna. Það eina sem hún þráir er bara að verða frísk aftur.
 
Þessi setning á blogginu hennar sló mig heldur betur: En núna allavega læt ég mig dagdreyma um húsgögn og skólabækur. Þrái ekkert heitar en að vera venjuleg skólastelpa á Akureyri í haust......   

Fyrir rétt rúmu ári síðan skrifaði ég sjálf:Ég ætlaði að nota þessa bloggsíðu mínar þegar ég flyti til útlanda til að segja frá öllum frábæru ævintýrunum sem ég myndi lenda í þar en í staðinn nota ég hana til að segja frá "frábæra" háskólalífinu á Akureyri. Já ég alveg breytti lífi mínu um nokkra metra í suður eftir menntaskólann.

Ég man bara hvað ég var vanþakklát og bitur að hafa komist inn í skólann, hvað ég var fúl að vera ekki á leið til útlanda og gera eitthvað spennandi. Það sem maður getur verið heimskur stundum. Ég hafði svo margt gott á eyrinni góðu og hef það líka í dag, enda töluvert þakklátari fyrir það í dag hvort sem þetta slys hefði orðið eða ekki, það er samt svo gott að fá svona reality check þegar manni finnst eitthvað erfitt þegar það er það alls ekki miða við vandamál sumra.
 
Mér finnst sjálfsagt að láta sig dreyma um stærri hluti, fara til útlanda og búa þar ef maður hefur tök og viljan til þess. Vonandi eitthvað sem ég fæ að upplifa í haust. En í öllum dagdraumunum um prinsinn á hvíta hestinum, húsið á þremur hæðum, range rover jeppan, stóra fataherbergið, endlaust föt og skó og fá allt upp í hendurnar verður maður að hugsa um allt sem maður er að fá sem er alls ekki svo sjálfgefið en maður fær það nánast upp í hendurnar.


Jáááá bitte..komið gott af þessu!

Annars er það bara í fréttum að ég er svo mikið á leið á þjóðhátíð eftir fimm daga!!! Reyndar ekki með húsvagnin sem ég og jara vorum búnar að plana þrettán ára en elsku þjóðhátíð er það og ég get svo mikið ekki beðið eftir þessu! :D
Ætla svo að njóta mín innilega þarna..hlusta á elsku besta Bjögga Halldórs minn, sitja í brekkunni og syngja(öskra) Lífið er yndislegt...því það er það sssvvooo sannarlega, þótt á móti blási! :) 

Svo eru það bara vonandi úGlönd í haust, já með G..!  

Annars er þessi maður alveg snillingur: http://mbl.is/mm/folk/serefni/pistlar/velgengni/

Kv. Súperúberpælerinn sem er samt bitur yfir bílnum sínum og langar að fá hann EnTúTre!
Ester:)))

Ester Ósk Árnadóttir
Engin athugasemd

Fídafídafúúú

30. júní 2010 klukkan 23:14
Bloggið vann.. Alltaf skal ég enda á því að detta aftur í bloggheiminn...sem er bara alls ekki leiðinlegt :)  Bloggið fer alveg að komast í tísku aftur enda facebook að verða hálfdauður staður, maður fer bara að detta inn á msn aftur og bloggið verður klárlega málið! Jahú það er alveg minn staður, alltaf svo gaman að blogga þótt það sé ekki um neitt og enginn lesi þetta í dag þá er aldrei að vita hverjir detta inn á bloggið manns seinna...svo er bara svo gaman að tjá sig! =)
 
Sumarið er komið á Íslandi og fyrsta árið í háskóla staðreynd. Náði öllum með glans og næstum því langaði bara að fara aftur í skólann í haust en held það sé mál að taka smá frí frá skóla enda finnst mér 16 ár ágætt í bili =) Samt á ég eftir að sakna frábæru krakkanna sem voru með mér, vökunæturnar verða alltaf skemmtilegar eftir á og verkefnin og prófin sem maður lá sveittur yfir og bölvaði, verða skemmtilegar minningar þegar góðar einkunnir koma í hús :)) Sumarið er líka búið að vera ótrúlega gott, orðin aftur flokkstjóri og það er endalaust gaman, þótt ég endi sem brunarúst eftir nánast hvern einasta dag... Sólin búinn að vera svolítið mikið í heimsókn í sumar... Við hötum það ekkert ..Óóónneei! :D Mæti bara muna eftir sólarvörn svona einn daginn, finnst tómatar ekkert sérstaklega heillandi :P
Svo er það bara mitt elskulega bíó og kaffi Akureyri í sumar...lýst vel á þetta !

Júbbileríngin hjá MA var um daginn og það var svo ótrúleg tilfinning að kasta hvíta kollinum upp í loftið og horfa á svarta birtast og hugsa að ÞRÁTT fyrir allt, þá tókst mér þetta. Ótrúlegt og skemmtilegt að upplifa þetta..hef aaaaldrei verið stoltari af því að vera MA-ingur heldur en einmitt þetta augnablik.

Maður verður bara einhvern veginn að lifa í augnablikinu og vera svo þakklátur fyrir góðu stundirnar =) Það er það besta! Góðu minningarnar lifa og þær slæmu hverfa, vond sár gróa og við upplifum ný frábær augnablik sem er jú það yndislega við þetta allt saman! :D Já ég er væmin.. En bara að horfa út um gluggann á fallega sólsetrið, vitandi og vonandi að ég fái að upplifa svona sólsetur aftur og aftur og aftur hvort sem það verður hérna megin á hnettinum eða annars staðar á hnettinum þangað til ég verð eldgömull með hundruði frábæra minninga...er góð tilfinning :) ...gæti svo sem líka verið að ég sé að horfa á elskulegu grey´s sem ég dett svona í væmnina hjehje

Enginn skóli í haust og heilt ár framundan þar sem ég gert hvað sem ég vill, það eru ekki allir svona heppnir í lífinu :) Get samt ekki sagt annað en ég sé aðeins með valkvíða eins og alltaf enda óákveðin manneskja með eindæmum en það verður gert eitthvað amazingly gott við þetta ár mitt!
Bara komið að því að prófa annað, upplifa nýja og skemmtilega hluti og bæta við í reynslubankann. Strika út nokkra hluti af "hvað ég ætla að gera í lífinu hluti" listanum og fara aðeins út fyrir conformt sónið mitt. Held það sé alveg málið =) 

Twenty years from now you will be more disappointed by the things that you didn't do than by the ones you did do. So throw off the bowlines. Sail away from the safe harbor. Catch the trade winds in your sails. Explore. Dream. Discover

eenn já takk og bless

Ester Ósk


Ester Ósk Árnadóttir
Engin athugasemd

Blúgg

06. desember 2009 klukkan 00:15
Sá ekki annað í stöðunni en að blogga, þrátt fyrir að fjöldinn sé frekar fár sem lítur hér inn eennnn kominn með leið á því old one og þar sem ég ætla að vera með þessa bloggsíðu þar til allt er komið í hring og allir byrjaðir að blogga aftur...þá verð ég að halda mér við efnið...=)

VoðalegaAgalegaGóðurDagurAðBaki og ég sit við tölvuna á laugardagskvöldi að yfirfara síðustu ritgerðina og undirbúa næst síðasta próflesturinn á þessari önn. Ég er bara mikið nær því en ég hélt að falla ekki í neinu á þessari fyrstu önn í Háskóla :D Maður getur það sem maður vill, það er alveg þannig;)!
Og það með mögulega lélegustu tölvu sem sögur fara af, hún kemst örugglega í Gunnies World Record fyrir að vera léleg...reyndar ekki örugglega heldur pottþétt! Bara á þessari einu setningu er hún búinn að frjósa svona fjórum sinnum! hlakkar ekkert lítið til að henda henni í vegg þegar ég fæ mér nýja..það er sko eitthvað til að hlakka til..:P

Eyddi laugardagsmorgninum mínum upp í háskóla að fara yfir hina gleðilegu rökfræði. Eftir það var deginum bara eitt í það skemmtilegasta í heimi! Jólastúss! Ég elska að fara á glerártorg á þessum árstíma! Elska að setjast niður með kakóbolla með yndislegum! Versla jólagjafir! Hlusta á endalausa jólatónlist! Setja upp jólaskraut! Hitta einhvern veginn alla allsstaðar! Þorláksmessa! Kuldi og rölt! Aðfangadagur og kvöld! Frábærifrábæri matur! Svo ekki sé talað um áramótin! Hvað þá áramótaskaupið...það er alltaf allt svo skemmtilegt á þessum tíma! :)
það verða bara allir eitthvað svo ljúfir..mér finnst það svo yndislegt. Allt andrúmsloft verður svo frábært...! get ekki lýst því hvað ég elska þegar þessi tími rennur í garð!

Vá mörg upphrópunarmerki! Góðan og blessaðan..tók ekki eftir þessu! ...greinilegt að maður fylgir tískunni haha! :D  

Kvöldið fór svo í það að dunda sér með sætustusætustu frænkunni smá sleepover hjá Elísabet og þá verður sko að dekra við hana :D ... fórum góðan rúnt um akureyrabæ að skoða öll jólaljósin. úti með hundanna. keyptum hellings nammi og dvd. lagsagne ala Birgir og svo kósý tæm, svo æðislegt að kúra með þessu kríli.
Verður skrautlegt að sjá hvernig nóttin fer ekki nóg með að vera með tvo plássfreka hunda, þá er ein plássfrek skvís kominn í viðbót..:)

Tvö próf og ein ritgerð sem er kominn í hús! ssssvvvvoooooo mega jólin koma með allri sinni dýrð! 

Skrifa bloggið á mikinn svefngalsa og lítinn svefn! :D

Ester Ósk


Ester Ósk Árnadóttir
Engin athugasemd

Þessi færsla er læst með lykilorði.

15. nóvember 2009 klukkan 23:30
Ester Ósk Árnadóttir
2 athugasemdir

Þessi færsla er læst með lykilorði.

24. október 2009 klukkan 12:51
Ester Ósk Árnadóttir
3 athugasemdir

bloggetiblogg

09. október 2009 klukkan 01:22
Ég hef alltaf tilhneigingu til að blogga á nóttinu...veit ekki hvað það er. Kemst á trúnó stigið þá..með jú netinu en ekki hvað haha:)
Ég er orðin svo overdoze af te og gosi að ætli ég gæti haldið mér vakandi yfir iðnbyltingunni í alla nótt. Það yrði bara nokkuð gott met í gunniess world record bókina.
Ég á afmæli eftir tvo sólahringa ca. og í fyrsta skipti í svo langan tíma finnst mér það gaman, eiga afmæli, eldast..ekki svo slæmt.
Samt væri ég ekkert á móti gömlu góðu tímunum, svo margir góðir tímar. En tímarnir breytast.
Ég er hætt að pirra mig að ég og aðrir séum að fjarlægast, eða að ég sé búinn að missa sambandið við hina og þessa...ææi so be it.. eða að ég sé ekki kominn til útlanda að gera e-d stórmerkilegt. Ég ÆTLA að fara til útlanda þó það þurfi að bíða aðeins...það kemur samt að því;)  
Stór ákvörðun fyrir þetta afmæli er að hætta að hugsa svona mikið og leyfa hlutunum að gerast...ég hlýt á endanum að finna það sem ég er að leita af.
Everything happens for a reason er svo gott mottó. Reynslan hefur bara sýnt það að hugsa of mikið endar aldrei vel...hefur ekki gert það í gegnum tíðina. Hausinn hefur stundum soðið þegar hefur ekki einu sinni verið ástæða til. 

En já gott með trúnó...setjum bara endir á það hér.

Háskólinn er jú kannski ekki besti háskóli í heiminum og námið er ekki upp á fimm aur en fólkið er að gera gott mót og oft á tíðum bara gaman að vera hákskólapakk á Akureyri.
Sprellmótið var um daginn og var það alveg ótrúlega gaman, þrátt fyrir að vera ein af svona fimm sem drukku ekki þarna og að vera með fullefem, þá var þetta alveg magnað. Mín deild vann bikarinn ennþá meira magnað fyrir því;)

Vá hvað maður er e-d slakur í blogginu...enda orðið svo old fashion að maður er bara hræddur um að vera grýtur. Facebook er meira en málið - enda þegar ég er að blogga, hugsa ég oft að ég gæti bara set akkúrat þetta í eina setningu og set á facebook og fengið jú töluvert fleiri viðbrög.
En það er gaman að vera blogger.
Ég er orðin alveg tóm.
Ætla að lesa yfir glósurnar og svo lúlla smá:)

Jæja.

Kann ekki að kveðja.

Ester Ósk.
Ester Ósk Árnadóttir
Engin athugasemd

Blogg!

28. ágúst 2009 klukkan 01:54
Anskotans bölvað! Talvan hrundi um leið og ég ætlaði að vista fyrstu færsluna mína í langan langan tíma..æi oj ljóta ljóta! En jæja kominn tæm á að setja eina færslu inn..ekki það að ég nenni eitthvað að skrifa aðra en ég er þrjósk.
Síðast þegar ég bloggaði var ég stoltur íslendingur af strákunum okkar og silfrinu..í dag blogga ég sem ekki svo stoltur íslendingur með lélegustu stjórnmálamenn sem sögur fara af..æi pirrandi fólk sem finnst sniðugt að fara í frí aftur í október eftir sumarfrí og svo aftur í desember í jólafrí, október er bara svona millifrí..svona á okkar síðustu og verstu...sniðuga fólk!..æi hvað veit ég..:)

Alveg sautjánhundruð og súrkál síðan síðast. Síðan síðast hef ég kláraði Menntaskólann á Akureyri og eignaðist eitt stykki sætan kærasta!


- Ég ætlaði að nota þessa bloggsíðu mínar þegar ég flytti til útlanda til að segja frá öllum frábæru ævintýrunum sem ég myndi lenda í þar en í staðinn nota ég hana til að segja frá frábæra háskólalífinu á Akureyri. Já ég alveg breytti lífi mínu um nokkra metra í suður eftir menntaskólann.

Fjölmiðlafræðin leggst samt alveg mjög vel í mig! Kaffiterían í háskólanum sló samt í gegn haha..það var virkilega eitthvað til þar að borða..ekki oft sem það gerðist í menntaskólanum:) Verður gaman að sjá hvernig þetta fer..fór einmitt í fyrsta tímann minn í fyrrdag og það fóru allir að glósa um leið og kennarinn opnaði munninn...held ég falli ekki þótt ég hafi sleppt svona fyrstu orðunum hans..góðan dag, þetta er inngangur að þjóðhagfræði? held ég.. Hefði kannsi átt að glósa hahah!
Fyrsta háskóladjammið mitt er á morgun ég er svona hálfspennt, verður örugglega mjög gaman enda búinn að missa af fyrstu tveimur og alveg komið tæm á að vera ekki svona mikill partýpúbber.


Tíminn flýgur samt svo frá manni eiginlega bara of hratt..óþægilega hratt. Ég er ekki lengur að blogga um það þegar við stelpurnar löbbuðum í hrísalund til að sjá hrísalundargæjanna, ekki lengur að blogga um öll frábæru handbolta og fótboltaferðalögin eða busaballið mitt sem var osom, eða þegar sjallinn var osmo.
Ég er að blogga um háskóla, ég er ekki lengur gaurinn sem ég mæti með hliðartösku og gleraugu þegar ég var í sjöunda bekk í grunnskóla og mér fannst vera svo fullorðinn...
Hann var í menntaskóla.
 
Ég er í svo mikill tilvistarkreppu og með útþrá á svo hættulega háu stigi að það er hrikalegt!

Ég veit ég er bara 20 ára og það er nóg eftir. ég er samt óþolinmóð ég vill að hlutirnir gerist núna.

eennn úr einu í annað.

Ég velti elskulega frábæraogfallega bílnum mínum um verlsunarmannarhelgina. Bahamas bóbó kominn undir græna torfu eða meira svona undir önnur húdd. Sniðuga ég. Þetta var samt örugglega hrikalegasta tilfinning sem hægt er að upplifa og hún lifir góðu lífi á eftir. Ekki það að ég hafi búist við einhverri rússibanaferð en að fara svona hring eftir hring með farþega í bílnum og geta ekkert gert og bara bíða og vona að bílinn stoppi einhvern tímann og allir séu heilir er ótrúlega lengi að líða og ofboðslega margt að hugsa um, það er þá sem tíminn stendur í stað. En sem BETUR fer sluppum við öll mjögmjögmjög vel og fór betur en á horfðist.

Jæja klukkann að verða tvö og ég þarf að sofa út á morgun.

Ég ætla posta á facebook og vona að einn til tveir lesi þetta allavega...ótrúlega sniðug aftur..bara eins og það hafi bæst við nokkrar heilasellur, við að byrja í háskóla. Grín.

Ester Ósk

- vá þið hefðuð átt að sjá hina færsluna..haha:)
Ester Ósk Árnadóttir
4 athugasemdir

búðu til hetjuna í sjálfum þér - óli stef ;)!

25. september 2008 klukkan 23:19

Þessi síða er svo vvvvaaaddd hellevveddee farinn pínulítið og svolítið mikið til anskotans...heimsóknir í dag; 11 sssjjiibbbbííí..llóner!

Fór með Söndruz og elsku Ingu Þórey út í sveit að borð franska skúffuköku eftir skóla. Kakan eða súkkulaðið og ísinn og ískalda léttmjólkin var einu nr. of gott! Svo þurftu þessi kjánar að byrja að tala um dauðann og hræðsluna við hann! tilgangurinn með lífinu? eða ekki tilgangurinn með lífinu? tttiiiilllllll hhhvvverrrsssss!?!? takk stelpur! þetta er búið að vera í heilanum á mér í allann dag ;P  hvað ef þetta er eina tækifærið sem ég fæ og ég klúðra því bigtime! ég er ekki búinn að gera neitt síðustu 19 árin!?! hvað ef ég fer svo ekkert til útlanda eftir allt saman og enda bara sem bitur gömull kona...smmeiiiikkkk maður!

bætir ekki ofan á þetta að ég er að endur upplifa gömlu daganna með að vera að horfa á scream 2 sem er einmitt í þessum töluðum orðum er á pause þar sem bregðuatriðin fara ekki of vel í mitt litla hjarta..heh! stóra ég!

fórum svona að spá hvort við værum alltaf að upplifa það sama bara á sitthvoru tímabilinu. kannski var ég ester hippi einu sinni og nú er ég ester ekki svo mikill hippi lengur. kannski var ég ester kiss fan dauðans einu sinni. kannski var ég einu sinni lafði ester - alltaf að upplifa það sama bara ekki með sama hætti og kannski ef þetta er rétt þá erum við - gömlu við grafinn einhver staðar annars staðar ætli maður geti þá kannski heimsótt sitt eigið leiði. ookkeii fínt...komið gott af súkkulaði hjá þessari! lala! 

- búinn að fara til rhodos - fjör - nei - en samt jú! sé til með útlendar ferðir framvegis...set allavega pensilín í töskuna whenever - where ever.
- fjórða árið í ma LOKINS staðreynd - ég er í 22 einingum! dauði!
-ég verð tuttugu eftir 15 daga...tilhlökkunin er jafn lítill og að mæta í tvöfalda félagsfræði hjá Önnu Siggu..- nei segi það nú ekki..en hver vill svo sem verða gamall?
- sakna unglingavinnunnar ekkert lítið! sakna reyndar sumarsins svakalega! og krakkanna ennþá meira! og stelpnanna sem ég var að vinna með! snillingar!
- hlakka samt ógeðslega mikið til jólanna!
- Ólafur Stefánsson og hans heimspeki er hetjan mín!
- ég sakna ólympíuleikanna!
- sakna meira að vakna klukkann sex til að horfa á leik...einhver stemmning í því! sérstaklega þegar þeir tóku sig til og stóðu sig svona ógeðslega vel..!
- ég get ekki beðið eftir að sálin og skímó komi til ak! ég get bara ekki beðið! íslenskulagadrusla!


eru þetta bara staðreyndir lífsins eftir allt saman..- tilhlökkun - ekki tilhlökkun - réttar/rangar ákvarðanir, stjórnum við ákvörðunum okkar?...er lífið ekki fyrirfram ákveðið? eða er það fyrirfram ákveðið? og hugsun þá þokkalega ofmetin!..þá er ég allavega í góðum málum! heh!....aaaaaaaaaa ég er eiginlega pínulítið að missa vitið hérna meginn máske hætta bara hér...segja stopp og allann þann pakka! 

----æææææiiiii lélega blogg! greinilegt að ég þarf að koma mér í aðeins meira í form en bara líkamlega séð..;)

eenn já allavega ég blogga og ég er allavega ekki hætt!

Ester Ósk ofursúperofursúperpínlegagrátlegasamthlægilegasorglegamannekja! :D

Ester Ósk Árnadóttir
3 athugasemdir

hún bloggaði...magnað!

01. ágúst 2008 klukkan 20:30
Ég eeeelllllssskkka grasblettinn niðri á torgi! vá hvað hann má alltaf vera þarna!
Ég elska veðrið þessa daganna....það mætti bara allltaf vera sól og 25 stiga hiti á Akureyri!
Ég elska að ný dönsk sé í kvöld!...sshhitt ég ætla að dansa!
Ég elska að sálin sé á morgun í sjallanum....það er geðveikt!
Ég elska að fá grill í kvöldmatinn!
Ég elska vinnuna mína forever and ever og shit hvað ég elska krakkana mína og vá hvað ég á eftir að fara að grenja þegar þetta er búið!
Ég elska sumarið!
Ég elska að það séu bara 28 dagar þangað til ég verð takk fyrir á rhodos að ssssllleeeiiikkjjja sólina bókstaflega eða frekar hún mig...ég ætla að verða bbbrrrrúúúnnn!
Ég elska skattinn...aldrei þessu vant! ég fékk 46.000 frá þeim! mmaggnnaaðð!
Ég elska litlu fallegu frænku mína sem er svo innilega sæt!
Ég elska versló!

Vá hvað það er geðveikt að vera á Akureyri þessa dagana, þetta veður er svo geðveikt!
Fór í vatnsslag í vinnunni í morgun...það var svo gaman! snérist að vísu allt í höndunum á okkur og í stað þess að krakkarnir blotnuðu...urðum við svo rrreennnanndii blautar...ekki einn þurr blettur á okkur...vatnsbyssur, vatnsblöðrur, fullar vatnsflöskur, balar fullir af vatni og kókómjólk einkenndi morguninn í morgun...gaaaammmmaaannn!

volla ég bloggaði...þótt núll manns skoði þetta ennþá og ennþá færri kvitta..!

farinn út með litlu frænku í vatnsstríð...bblleeessss
Ester Ósk Árnadóttir
2 athugasemdir